26júní

Skíta ógeðslegt land!!

Hvað er betra en að vera pirraður á svona vibba ógeðslegum dögum, hvert er þetta helví..... land að fara??? Maður spyr sig! Það er drullukalt hérna og rigning, neinei það kom sól í 3 daga en halló það er sumar og hvar er veðrið. Nú fer ég alvarlega að hugsa um að flytja eitthver annað!!!! Vil hafa sól og hana nú!!! Jújú svo er fyrsta helgin í júli næstu helgi og jújú maður var að velta fyrir sér útleigu en neinei það er rigningaspá hvað annað, þannig ég fer ekki neitt!! Verð frekar heima og fæ mér heitt kakó og ligg undir flísteppi, aaarrgggg hvað þetta er óþolandi!!


en er byrjað að selja miða til Eyja á þjóðhátið með herjólfi, veit einhver????? eða er kanski bara löngu uppselt og ég veit ekkert!!!

Helgin var fín fórum í afmæli til Lilju á laugadaginn sem var bara fínt og svo var það bærinn og vá hvað ég hata bæinn, mér finnst ekkert gaman í honum og er hætt að fara þangað!! off staður til að djamma á. Nú verður það bara eyjar og svo ekkert rugl meira.

En er að spá í að hvíla mig aðeins núna, er eitthvað tussuleg, pirrandi blogg þar sem allt er eitthvað svo neikvætt í því núna, en hvað er annað hægt að segja í svona kulda og leiðindum???????

Kveðja, Dísainn ofurpirraða á þessu ógeðslega landi:(

26. júní 2006 klukkan 21:56
Ásdís Elva Kristinsdóttir
6 athugasemdir
23júní

Sól Sól skín á mig!!!

Ég held að ég ætli að verða söngkona þegar ég verð stór. Eða ekki því ég kann ekki að syngja og er barsta ógeðslega fölsk.

AAhhhhh komið helgarfrí sem er ekki slæmt og bara ein vika eftir í vinnunnni og þá er ég komin í 5 vikna frí sem er ekki slæmt, svo vinn ég í 3 og hálfa viku og þá er ég hætt og sest á skólabekk sem er gott. En þetta verður örugglega fín helgi ef veðrið verður svona gott. Þá verður legið út á svölum og látið sólina sleikja sig, maður þarf nú að æfa sig fyrir jólin sem verður bara sól og beer:) ummmmm langar í einn kaldan núna en ég fæ mér hann lkanski bara á morgunn!!



Svo verður afmæli hjá Lilju á morgun og enn eitt girls hittingur sem er bara gaman:) Hlakka til að sjá ykkur á morgun skvísur!!

En ég hef þettta ekki lengra að sinni ætla að fara að kenna barninu að skríða eða labba, annaðhvort, þetta gengur ekki lengur að hún sitji bara kyrr:( sjáum hvernig afköstin verða!

Kem með nýja loku um helgina þannig ........framhald í næsta þætti......

Dísarinn bjórþyrsta:)
23. júní 2006 klukkan 22:40
Ásdís Elva Kristinsdóttir
1 athugasemd
19júní

Líið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér:)

Fréttir aldarinna verða lesnar a fréttastöðinni NFS í kvöld:) bull og bull!!!

En ég vakanði spennt í morgun og beið eftir að pósturinn væri kominn og rauk svo niður um hádegisbilið með selmu á nærfötunum og ég hálf nakin og að sjálfsögðu þurfti maður að mæta fólki sem gerist voða sjaldan hér í geislanum og hvað þá á þessum tíma á mánudögum. En í póstkassanum var bréfið sem ég er búin að bíða alltof lengi eftir og það var frá KHÍ. Það var frekar þunnt og ræislegt en á því stóð sem ég vildi sjá. ÞÚ KOMST INN:) ég hoppaði hérna heima og greyið selma heldur að hún eigi snargeðveika mömmu. Svo hringdi ég út um allan bæ og sagði fréttinar.

Svo fékk ég líka bréf frá útlöndum og það var frá Eddu minni og í því voru spennur sem ég er ástfangin af í hárið á Selmu og líka eitt stykki póstkort. Jey það er alltaf svo gaman að fá kort frá útlöndum og hvað þá pakka með:) Takk Edda okkar fyrir þetta ég kanski sendi þér eitthvað í júlí þá er ég komin í frí og hef örugglega ekkert að gera hérna á landinu. En það má segja að þetta hafi verið skemmtilegasta póstkassaerðin mín hingað til:)

Þannig 4 sept. hefst lærdómurinn og ég er ofurspennt að byrja í þessu.
Nú er maður bara að fara að finna leigjanda á íbúðina, pakka niður, fara upp í Árbæ og þá hefst lífið. Á reyndar eftir að segja upp í vinnunni en ég mana mig í það á morgun jafnvel:) Ómar ætlar sennilega að fara á laugavatn og koma heim um heægar til okkar selmu, en ég tel að það verði fínt því að það er ekkert alltof mikið pláss hjá mömmu og ég veit á endanum verðum við snargeðveik í kjallaranum. En eitt er víst allavegana Steinunn og Íris og ef ekki Edda, það verða kojufillery þar eins og í DEN:)

En ætla að fara kanski að klæða mig í föt svo ég geti farið atur fram á gang og haldið sýningu á þeim fatnaði sem ég vel.

En þangað til næst, úffff 6 mánuðir í að maður verði komin á Tenerif, vá alltof langt þangað til, ætla ekki að fara að hugsa um það núna

Kveðja, Dísarinn sem er á svífandi á bleikuskýi þessa stundina:)
19. júní 2006 klukkan 21:25
Ásdís Elva Kristinsdóttir
6 athugasemdir
17júní

Hæ hó og jibbí jey:)

Gleðilegan þjóðhátíðardag allir saman. Ísland er hvað gamalt??? hverjum er ekki sama. Þessi dagur er bara ekkert spes því það er aldrei alminnilegt veður á þessu skítalandi. En ég ætla mér þó að fara með Selmu í bæinn og kaupa handa henni blöðru, einhverja voða fína. Hún er bara sofandi núna úti og mamman situr hérna og bíður eftir henni:)

Kíkti aðeins til Stoný í gær á stelpurnar og var það voða fínt, alltaf gaman að hitta fullt af stelpum og kjafta er það ekki???
En ég fór ekki í bæinn, varð allt í einu eitthvað svo slöpp þannig ég beilaði bara og fór að sofa sem var gott í morgun þegar ég vaknaði.

En ef einhver vill koma með mér í bæinn í dag má hinn sami hafa samband núna:)

Já svo er ég að fara til Tenerife um jólin, það er staðfest, búið að panta og læti:) fer út 21.des til 4 jan:) Magnað ætla bara að liggja og sleikja sólina:)

Hafið það gott í dag og vonandi gerið þið eitthvað skemmtilegt í kvöld. Ég er að spá í að fara í mat til mömmu bara og tjilla:)

ÞAngað til næst elskurnar

Ykkar Dísa sem er sko algjör skvísa:)
17. júní 2006 klukkan 19:54
Ásdís Elva Kristinsdóttir
2 athugasemdir
10júní

Fjöllin hafa vakað í þúsund ár!

Langar á Bubba tónleika, þvílíkur skandall að hafa ekki keypt sér miða á tónleikana á síðasta þriðjudag. Hefði bara viljað vera þarna. Fer bara næst ef það verður einhverntíman í boði.

En ég sit hérna heima undir sæng og er að bíða eftir fréttum og helka, sjiiitttt hvað ég er orðin gömul en Steinunn og Edda ég er byrjuð á teppinu eins og Effa er að gera. Vantar stundum hjálp og verð alveg brjáluð því ég var búin að gleyma tökunum á þessu en ég held að þetta fari að detta inn. Edda hvað geriru margar umferðir af litunum, mátt endilega segja mér því ég er ekki viss. Þú ert aldrei inná MSN þannig að ég næ ekkert á þig. Vonandi að þú lesir þetta og getir hjálpað mér í þessu.

En allavegana þá er þetta frekar skrítin helgi því Selman mín er í sumarbústað með mömmu og co því ég þurfti pössun í gærkveldi og í morgun. Fórum í leikhús í gær á fullkomið brúðkaup og þetta er snillar leikrit sem ég mæli eindregið með. Svo var bara farið að vinna snemma í morgunsárið og svo verður hittingur hjá leikskólanum á eftir og smá skrall. jújú ég sem sagðist vera hætt að drekka, kanski seinna. Finn kanski betri tíma en akkurat sumarið til að hætta. Hverja helgi langar manni alltaf í beer og grillmat ekki satt???????? og svo verð ég að skella mér í útleigu líka í sumar. Það má bara ekki klikka.

En ég er að spá í að fara að grilla eða meira kanski að ómar reddi því og ég brýt saman þvottinn.

En ég vona að ég sjái ykkur kanski í kvöld á srallinu, Stoný tökum eitt rugl á þeta á eftir. Enga þynnkustæla á þetta:) svo veistu að pússlið bíður hérna eftir þér, leikurinn þinn og hillan. Þetta fer bráðlega á uppboð ef þú nærð ekki í þetta:)

Farin að gera eitthvað að viti og græja hitt og hitta, sjáumst ofurhress í kvöld, en ekki á HVERFIS:) Blessaður!!!

Dísarinn letingji
10. júní 2006 klukkan 23:21
Ásdís Elva Kristinsdóttir
6 athugasemdir
09júní

Já ég held barasta að ég skelli mér á þetta:)

Jæja þá er maður mættur í færslurnar!!

Ég er ekki nóg og sátt hvað það eru lítil komment:( þið verðið að bæta ykkur ef ég á að gera þetta skal ég segja ykkur. En ég ætla að bæta öllu inn á þessa síðu sem var á hinni þegar ég hef næði. Voða lítið hægt að gera þegar maður er alltaf að stökkva frá út af barninu.

En ég var bara að koma heim úr vinnunni. Mikill hiti er í vinnuhópnum því það er staffapartý á laugadaginn og er stefnan tekin þangað. Ég hef nánast ekkert séð vinkonur mínar þessa dagana nema jú kanski Írisi mína smá þetta gegnur bara ekki.

En ég ætla að fara að horfa á landsleikinn sem er í beinni núna

kveð að sinni úr holtinu!! Segið mér nú hvað þið ætlið að gera um helgina!!!!!

Dísa STUÐ!!!!
09. júní 2006 klukkan 00:58
Ásdís Elva Kristinsdóttir
3 athugasemdir
26maí

Á maður að breyta um???

Hilvíti lekkert á maður að nota þetta eða centralið????? lúkkið er betra samt á þessari:)

Sjáum hvað ég get fikrað mig áfram í þessu!!!

ummm....
26. maí 2006 klukkan 23:55
Ásdís Elva Kristinsdóttir
4 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

Könnun

Sumarið er tíminn.......!!!