Allt að ske!!!
Góða kveldið!!Fínt að frétta úr holtinu þessa dagana. selma tók heil 8 skref áðan hjá ömmu sinni. Hún fekk mikið af klappi og hrósum fyrir þetta og þá datt hún.
Annars er ég búin að kaupa eiginlega allt fyrir afmælið hennar, ég er svo spennt á bara eftir að kaupa í matinn, það er kanski full snemmt að gera það núna:)
Svo er stefnan tekin á nýnemakvöld í skólnum í á Pravda á eftir og fá sér kanski einn eða 2 kalda:) Er orðin svolítið þyrst!!
En svo er ég líka búin að skipta um bekk í skólnum ég er svo ikill auli eitthvað og feimin að ég varð að vera með einhverjum sem ég þekki sem getur haldið í hendina á mér og stutt mig;)
En já svo væri ég nú alveg til í fara að hitta ykur gells fljótlega, svona þegar við höfum góðan tíma, kanski spurning um grill eða eitthvað:)??????
Annars vill ég minna ykkur á það að ég á afmæli á þriðjudaginn og þá verð ég sko 22:) úfff ætla að njóta þess að vera 21 í nokkra daga í viðbót:)
En er að spá í að fara að græja mig fyrir kveldið!!!
Kveðja, Dísarinn sem er 21:)
08. september 2006 klukkan 00:27
Ásdís Elva Kristinsdóttir
Ásdís Elva Kristinsdóttir
