06október
jebb þar hafið þið það, ég hef fengið nóg að vera með þessa síðu og hérn með segi ég henni upp
er komin aftur á
www.blog.central.is/elitan Þessi síða liggur alltaf niðri og þá kemmst ég ekki að lesa blogglistann minn og þá verður dagurinn ekki eins góður, þannig geðheilsunnar vegna skipti ég yfir
Komið með mér:)
Dísarinn:)
25september
Ég viðurkenni það að ég er eiturhreessss eftir helgina!!!
Drottningin skellti sér á fylkisballið sem var bara hrein snilld. vá væri til í að fara á svona böll hverja helgi.
Byrjuðum heima að drekka og hita upp og svo var bara runnað á ballið. úfff þetta var svo gaman. Gamlir góðir árbæingar voru þarna og var mikið spjallað og dansað.
Nú sit ég á bókasafninu að gea ritgerð ásamt 3 öðrum og það er ekki það auðveldasta þar sem við vitum ekki hvað hinir eru að gera.
Svo verður afmælisveisla á sunnudaginn í holtinu því litla sæta frekja mín á afmæli á næsta mánudag og ætlum við foreldranir að slá upp í góða veislu handa henni. Ég veit að ehnni hlakkar mikið til, hun er buin að æfa sig að opna pakka. Hafið fínt pakkaskraut á þeim því það er það skemmtilegasta.
En annars er vikan bara byrja og framundan er jú:
bakstur
lærdómur
vinna
þrífa
og allt annað sem er skemmtilegt......:)
kveð að sinni úr Kennó!!!
22september
Sælar!!!
Ákvað að skella inn eins og einni nýrri færslu þar sem ég er alveg búin að loka eyrunum og búin að missa einbeitingu hérna í Skriðu í KHÍ. djöfull eru þetta leiðinlegir kennarar sem eru með fyrirlestra í dag. En svo er bara einn bekkjartími eftir og svo helgarfrí:)
Heyrst hefur að drottningin Steinunn ætli bara að liggja um helgina. Segi ykkur hvort það takist á mánudaginn en einhvernvegin efast ég um það.
Fylkisballið á morgunn er að spá í að sleppa því bara:)
En ætlar einvhver annar að gera eitthvað skemmtilegt á morgunn??
Ég er að spá í að biðja mömmu um að bjóða mér í mat og þá veðrur það humar. ÞAr sem hún á afmæli á morgun gamla konan þá er alveg tilvalið að hún bjóði í mat en ekki öfugt;)
svo langar mig í fullt af peningum og kaupa mér nóg af fötum, nú vantar mér allt egar ég á engann pening:( þetta er alltaf svona.
Hver kannast ekki við að far í kringluna og ætla að kaupa sér eitthvað en nei þá finnur maður ekkert???? og svo öfugt:)
En kveð að sinni úr skólanum.....Dísarinn sem er svo eirðalaus:(
15september
Ég veit ekki neitt. Veit voða lítið hvað á að læra heima í skólanum eða um hvað þetta fjallar. ég er alveg út að aka í öllum tímum og fyrirlestum, sssjjjeeet ég veit ekki hvað skal gera.
En annars er ferð í skólnum á morgun og hefst stuðið kl 3 með rútum og látum. hver bekkur á að vera í búningum og þetta verður bara stemmnig. Aldrei að vita nema að maður mæti ferskur á players eftir þetta:)
En ákvað bara að skella inn einni stuttri loku, nenni að gera allt nema að læra eitthvað sem ég veit ekki:(
Selman er farin að hlaupa út um allt og úff þetta er meira en nóg leikfimi að elta hana og beygja sig og lyfta, finnið ekki betri æfingar. Þetta reynir á allt;) hehe segi svona, mig vatnar Hreyfinga Félaga:) hver bíður sig fram????
En ætliði að gera eitthvað spennó um helgina????
Ætla að prófa að kíkj á blaðið aftur og gera eitthvað......
Kveðja, Dísarinn sem er heilalaus:(
13september
nú er mín orðin 22 ára, úfff nú er ég hætt að telja árin.
Var að éta kökur og svona, bara aðeins til að fitna:) Maður stoppar ekki í þessu kökuáti. Svo eftir nokkra daga eru kökur því Selman á afæli og þáverður étið meira. spurning um að skella sér í ræktina og hrista spikið!!!!
En það er Kennó djamm á föstudaginn og það er komin svolítil stemmning í mann.
Spurning hvenær maður rúlli heim ef maður á að byrja að drekka kl 3 um daginn, úfff ég er ekki svona góð í drykkjunni lengur.
En er að spá í að ljúka þessum afmælisdegi með því að fara bara að lúlla:) er hálf slöpp,
Takk fyrir allar kveðjurnar í dag eða þeir sem mundu eftir mér. Þá er best að nefna að amma mín hefur ekkert látið í sér heyra. Svona er gamla fólkið. Læt kasnki fylgja hér með mynd frá ári síðan
Sjáið hvað ég er lekker:)

kveð að sinni: Dísarinn ofurbomba;)
08september

Litla hetja þeirra Bebbu og Hjölla lést í gær. Hún var aðeins 16 mánaða. Votta Bebbu, Hjölla og fjölskyldu þeirra okkar dýpstu samúð.
08september
Góða kveldið!!
Fínt að frétta úr holtinu þessa dagana. selma tók heil 8 skref áðan hjá ömmu sinni. Hún fekk mikið af klappi og hrósum fyrir þetta og þá datt hún.
Annars er ég búin að kaupa eiginlega allt fyrir afmælið hennar, ég er svo spennt á bara eftir að kaupa í matinn, það er kanski full snemmt að gera það núna:)
Svo er stefnan tekin á nýnemakvöld í skólnum í á Pravda á eftir og fá sér kanski einn eða 2 kalda:) Er orðin svolítið þyrst!!
En svo er ég líka búin að skipta um bekk í skólnum ég er svo ikill auli eitthvað og feimin að ég varð að vera með einhverjum sem ég þekki sem getur haldið í hendina á mér og stutt mig;)
En já svo væri ég nú alveg til í fara að hitta ykur gells fljótlega, svona þegar við höfum góðan tíma, kanski spurning um grill eða eitthvað:)??????
Annars vill ég minna ykkur á það að ég á afmæli á þriðjudaginn og þá verð ég sko 22:) úfff ætla að njóta þess að vera 21 í nokkra daga í viðbót:)
En er að spá í að fara að græja mig fyrir kveldið!!!
Kveðja, Dísarinn sem er 21:)
05september
Verð að prófa aftur!!!
Jæja skólinn byrjaður og maður þarf að fara að rifja upp góða skólatakta......sjáum hvernig það virkar..Annars er ég bar aánægð að vera byrjuð þó svo að ég skilji ekki upp né niður í neinu.
Helgin var tekin í tjilli og á Nings og ég er ekki frá því að ég sé orðin háð matnum sem er þarna, langar bara í þannig í kvöldmat alltaf!!
En Selma er búin að taka fyrstu skrefin sín en það gerði hún í kvöld lilta prinsessan mín!!!
Annars langar mig bara að fá mér einn kaldan núna!! ummmmmm;)
Þori ekki að skrifa meira því kanski dettur þetta bara út!
Kveðja, Dísarinn sem er að vona:)
05september
Það dettur alltaf allt út sem ég er að skrifa, nenni ekki meira í kvöld, ætla að tjékkahvort þessar línur virki!!!!
29ágúst
Helgin var tekin í tjilli og í hörku djammi.
ÉG var farin að rotna því ég hafði ekki séð annað fólk síðan í eyjum. Takk fyrir frábært kvöld á laugadaginn stelpur og Magga mín takk fyrir mig, ummm mig langar svo í snittur að ég er að deyja:(
KVöldið var tekið í Malarásnum og svo á salt og hverfis og ellefunni og jamm maður fór víða.
Kollur gerðu sitt nema að ég var ekki sátt með að sita ein á Salt með kollu og fólk starði á mig eins og ég væri ekki alveg heil. En þetta reddaðist þegar hinar kollurnar komu.
Sunudagurinn var ekki eins góður og er ég ennþá að jafna mig alminnilega.
En nú er ég eiginlega orðin einstæð móðir því Ómarinn minn er farnn á Laugavatn í skólann og því verð ég lokuð inni hérmeð Selmunni og því eru heimskónir vel þegnar, TAKK!!! stoný og Íris kanski getum við tekið læruklúbb á þetta eins og í den:) getum bætt fleirum í hópinn!!!
Er farin að sofa, Góða nótt, Dísarinn einstæða og yfirgefna:)